6.flokkur kvenna

Bloggsíða 6.flokks kvenna

20.02.2012 11:24:46 / irstelpur6

Unglingadómaranámskeið... FYRIR FORELDRA og einstaklinga eldri en 15.ára..

Unglingadómaranámskeið verður haldið í ÍR heimilinu fimmtudaginn 23. febrúar kl. 19:00.  Við hvetjum áhugasama foreldra til að skrá sig og mæta á námskeiðið. />

Námskeiðið er haldið af KSÍ í samvinnu við ÍR í ÍR heimilinu fimmudaginn 23. febrúar og hefst kl. 19:00.  Námskeiðið stendur í um tvær og hálfa klukkustund.

Á námskeiðinu er lögð aðaláhersla á knattspyrnulögin en auk þess verður einnig farið yfir ýmis konar kynningarefni, fræðsluefni, skýringar og skýringarmyndir.  Námskeiðinu lýkur með skriflegu prófi viku síðar.

Námskeiðið er ókeypis.

Sá sem lýkur unglingadómaraprófi hefur rétt á að dæma í 4. flokki og neðar ásamt því að vera aðstoðardómari upp í 2. flokk.

Skráning er hafin á irknattspyrna@hotmail.com og magnus@ksi.is

Allir sem náð hafa 15 ára aldri eru velkomnir á námskeiðið.

Við viljum fá sem flesta foreldra til að mæta á námskeiðið og taka prófið. Þetta er ekki erfitt próf. Viðkomandi aðilar geta þá látið gott af sér leiða og aðstoðað félagið við dómgæslu í yngriflokkunum í framtíðnni.



» 0 hafa sagt sína skoðun

16.02.2012 14:49:27 / irstelpur6

BOLLA BOLLA BOLLA!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.02.2012 14:24:37 / irstelpur6

ATH æfingarnar á fimmtudögum hafa færst á ÍR-völl.

Kæru foreldrar/iðkendur

Æfingar ÍR/Leiknis i 6. flokku hafa færst af Leiknisvelli og yfir á ÍR völl á fimmtudögum. Ath síðasti fimmtudagur féll niður vegna veðurs og því vonum við að það sé enginn misskilningur.....


Sjáumst á æfingu..

Kveðja Dóri, Tanja og Ivana.

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.01.2012 18:50:51 / irstelpur6

Æfingar falla niður 26. og 29. janúar

Sæl öll,
 
Æfingin sem á að vera úti á ÍR vellinum á morgun, fimmtudaginn 26. janúar fellur niður vegna veðurs og æfingin 29. janúar sem á að vera inni í Seljaskóla fellur einnig niður vegna Þorrablóts. Sjáumst hress og kát á þriðjudaginn í Austurbergi.
 
Kv. Tanja

» 0 hafa sagt sína skoðun

21.12.2011 13:30:44 / irstelpur6

Þorrablót ÍR

Þorrablót ÍR Sælir ÍR ingar! Nú er komið að því sem allir hafa beðið eftir.......Þorrafagnaður ÍR í janúar. Þetta verður stærðarinnar hátíð og ætlum við að taka höndum saman, ÍR ingar sem og aðrir sem tengjast hverfinu, og hafa gríðarlega gaman. Hvetjum við ykkur að smala saman vinum úr félagin eða brottfluttum og koma og gleðjast saman, eitthvað er um að fólk bjóði í heimahús í hverfinu og rölti sér svo á samkomuna. Verðinu er haldið í lágmarki en til þess þurfum við mikinn fjölda fólks. Athugið að maturinn verður mjög fjölbreyttur og vel úti látinn og íþróttahús Seljaskóla verður sett í veislubúning þennan dag.....mjög skemmtileg tilbreyting. Nú er um að gera að kaupa miða, en miðasala er hafin á www.ir.is (kreditkort). Miðar verða svo seldir á skrifstofu ÍR, hjá Braga í Leiksport Hólagarði, í Fiskbúð Hólmgeirs í Mjódd og Noon&Súper Sól í Hólmaseli fljótlega í næstu viku. Það er um að gera að koma miðanum í jólapakkann, hvað annað :-) Athugið að það er 18 ára aldurstakmark. http://www.ir.is/UmIR/Thorrafagnadur/

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.12.2011 16:59:49 / irstelpur6

Komið jólafrí

Sæl öll,

Jólafríið er til 4 janúar.

Gleðileg jól.

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.12.2011 16:39:41 / irstelpur6

Fótboltafjör á laugardag / Iðkendur vs Foreldrar.

Fótboltafjör verður haldið í Seljaskóla laugardaginn 10. desember næstkomandi. Við hvetjum alla til að mæta. Hver aldurshópur í yngriflokkum kemur á þeim tímum sem eru auglýstir hér í fylgiskjali. Klikkið á fótboltafjör og þá sjáið þið dagskránna.

Allir iðkendur eiga að taka pabba og mömmu með. Iðkendur flokkana ætla að spila fótbolta við foreldra. Aðrir fjölskyldumeðlimir eru alltaf velkomnir og auðvitað amma og afi. 

Viljum bara sjá sem flesta. 


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.12.2011 19:31:04 / irstelpur6

ENGIN ÆFING 4. DESEMBER

Sæl öll,

Nettó-mótið verður haldið í Seljaskóla helgina 3. og 4. desember. Æfingin okkar fellur því niður. Sjáumst hress á þriðjudaginn 6. desember!

Kv. Tanja og Ivana

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.11.2011 19:32:28 / irstelpur6

BREYTING Á SUNNUDAGSÆFINGU (27.11.11)

Sæl öll,

Æfingin á morgun í Seljaskóla verður frá 11:00 - 12:00. Vegna móts í Seljaskóla getum við ekki verið á æfingu kl:12:00.

Því miður gat ég ekki sett þetta inn fyrr.

Kv. Tanja

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.11.2011 14:16:52 / irstelpur6

Minningarleikur um Hlyn Þór Sigurðsson á föstudaginn kl.18 (ÍR-Leiknir).

Meistaraflokkar ÍR og Leiknis í fótbolta mætast á föstudaginn í minningarleik um Hlyn Þór Sigurðsson á ÍR-vellinum klukkan 18:00. Í fyrsta sinn með Andra Marteins og Willum sem þjálfara þessara tveggja liða.

Frítt er á leikinn en frjáls framlög eru vel þegin í minningarsjóð Hlyns. Hvetjum við því alla til að mæta, úr öllum deildum og fáum aðra með okkur. 

Hlynur, var 18 ára gamall þegar hann varð bráðkvaddur þann 25. nóvember 2009 á æfingu hjá ÍR, en hann iðkaði knattspyrnu hjá félaginu ásamt því að þjálfa yngri iðkendur og gegna ýmsum störfum innan félagsins.Hann gerði ekki bara marga frábæra hluti í þágu félagsins heldur var hann einnig virkur í félagslífi og duglegur námsmaður.


Í sumar var haldið mót fyrir yngri flokka sem kallast Hlynsmót og er stefnt að því að hafa það sem árlegan viðburð en það gekk vel fyrir sig í sumar þar sem skipt var í deildir úr Evrópu í stað A, B, C eða D liða. Það var þá enska, ítalska, spænska og þýska deildin.

 

Félögin hvetja sem flesta til þess að styrkja málefnið og í leið sjá hörkuleik í Breiðholtinu. Þeir sem sjá sér ekki fært um að mæta á leikinn og vilja minnast Hlyns geta gefið frjálst framlag inn á reikn: 0115-05-60550 kt: 411209-0160


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.11.2011 02:28:00 / irstelpur6

Beiðni frá meistaraflokksráði karla.

Kæru foreldar/forráðamenn.. Samkvæmt beiðni frá meistraflokksráði karla þá báðu þeir okkur hjá Barna og unglingaráði að auglýsa eftir því hvort þið vitið um eða eigið íbúð til leigu til og með 10. desember. Og síðan aftur frá 6. janúar 2012 og til loka keppnistímabilsins fyrir Jamie McCunnie spilandi aðstoðarþjálfara meistaraflokks karla. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast hjá Halla formanni meistaraflokksráðs karla með vefpósti á halli@studioh.is eða hringja í síma 770-1500.

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.10.2011 15:47:12 / irstelpur6

Skemmtikvöld fyrir foreldra.

Kæruforeldrar og velunnarar knattspyrnudeildar ÍR !!

Skemmtikvöld knattspyrnudeildarinnar verður haldið í ÍR-heimilinu föstudagskvöldið 4. nóvember og hefst fjörið klukkan 20:00 og stendur yfir fram eftir nóttu.
  –síðast var MIKIÐ fjör – þetta kvöld verður ekki síðra!!

Léttarveitingar verða til sölu

Happdrættimeð frábærum vinningum, þar sem aðeins er dregið úr seldum miðum (miðar seldir á staðnum) meðal annars frá: Fiskbúð Hólmgeirs, Tapas barnum, Þínverslun, Bakarameistaranum, Borgarleikhúsinu og margir fleiri flottirvinningar

Posi ástaðnum

Enginn aðgangseyrir

Síðast en ekki síst þá ætlar þú að mæta ásamt öllum hinum til að kynnast öðrum skemmtilegum foreldrum

<O > </O >

Látið þennanviðburð ekki fram hjá ykkur fara  

FÖSTUDAGINN 4. NÓVEMBER KLUKKAN 20:00

 Kveðja Nefndin.

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.10.2011 19:05:04 / irstelpur6

Breytingar á næstu sunnudagsæfingu, 23.okt

Sæl öll,

Næsta sunnudag mun æfngin okkar vera frá 10:00 - 11:00 í Seljaskóla í staðinn fyrir 12:00-14:00. Yngra og eldra ár verða saman. Þessi tími gildir bara um æfinguna 23. okt.

Kv. Tanja og Ivana

» 12 hafa sagt sína skoðun

11.10.2011 20:47:55 / irstelpur6

Foreldrafundur 6. fl kvk

Sæl öll,

Þriðjudaginn 18. okt. verður foreldrafundur haldinn í ÍR húsinu kl 20:30. Þar munum við fara yfir árið, á hvaða mót við ætlum í sumar og fleira. Ég vona að sem flestir foreldrar komist.

Kv. Tanja og Ivana

» 11 hafa sagt sína skoðun

01.10.2011 23:32:04 / irstelpur6

Æfingar að HEFJAST...

Kæru foreldar/forráðamenn iðkenda hjá knattspyrnudeild ÍR.



Mánudaginn 3. október næstkomandi munu æfingar hefjast hjá knattspyrnudeild ÍR. Við höfum loks náð að manna allar þjálfarastöður og erum nú í þessum töluðum orðum að setja á æfingartíma hjá 3. og 4. flokki kvenna. Allir aðrir flokkar voru komnir með æfingatíma og voru þeir auglýstir strax um leið og þeir voru klárir. Tveir nýir þjálfarar taka til starfa hjá knattspyrnudeildinni en þeir verða Bjarni Víðir Pálmason og Brynjar Óli Guðmundsson. Bjarni Víðir mun þjálfa 3. og 7. flokk kvenna en Brynjar Óli tekur við þjálfun 4. flokks.



Nokkrar breytingar verða á þjálfarateymi deildarinnar þetta árið en við erum sannfærð um að þær breytingar eigi eftir að koma félaginu og iðkendum til góða. Allir þjálfarar uppfylla skilyrði U.E.F.A og KSÍ um menntun þjálfara og því teljum við okkur bjóða uppá vel menntaða þjálfara og metnaðarfullt starf líkt og síðustu ár. Eins og áður hefur komið fram þá mun samstarf ÍR og Leiknis í kvennaflokkum hefjast formlega á mánudag en félögin tvö eru sannfærð um að það muni einungis efla kvennastarf félagana. Til þess að þetta verkefni takist þá biðjum við foreldra og forráðamenn að aðstoða okkur við margvísleg foreldrastörf í flokkunum og halda vel utan um starfið í samstarfi við þjálfara deildarinnar. Við erum viss um að fjöldi iðkenda í kvennaflokkunum á eftir að aukast og öll umgjörð í kringum kvennaknattspyrnu eigi eftir að vaxa og dafna á komandi árum. Þar með munum við eignast fleiri leiknari ÍR-stelpur í komandi framtíð og eldri flokkar líkt og 3. og 4. flokkur þurfa ekki að strögla við að ná í lið eins og staðreyndin hefur verið síðustu ár hjá báðum félögum. Nánari upplýsingar um samstarfið verður rætt á foreldrafundum flokkana í enda október.



Uppskeruhátíð yngri flokka var haldin laugardaginn 17. september en þar var öllum iðkendum afhent liðsmynd til eignar. Einhverjir iðkendur misstu af hátíðinni og þeir sem fengu ekki myndina geta fengið hana hjá Dóra eftir helgi. Einnig er hægt að óska eftir að fá myndina senda á vefpósti ef einhverjr vilja prenta þær út í betri gæðum heima. Vinsamlegast sendið þá vefpóst á irknattspyrna@hotmail.com

Hér er hægt að sjá liðsmyndir af öllum flokkum: http://www.ir.is/Deildir/Knattspyrna/MYNDASAFN/



SKRÁNING IÐKANDA FYRIR NÝTT ÆFINGATÍMABIL – ATH. MJÖG MIKILVÆGT AÐ KLÁRA SEM FYRST.

Félagið er að taka í notkun nýtt skráningarkerfi og því verða allir forráðamenn að skrá börn sín og ganga um leið frá greiðslu æfingagjalda. Skráning fer ekki í gegnum þjálfara. Hér er slóðin inn á skráningarvefinn https://ir.felog.is og í meðfylgjandi pdf skjali eru leiðbeiningar (smellið HÉR til að nálgast skjalið). Kerfið er samtengt Rafrænni Reykjavík og því er mjög auðvelt að ráðstafa styrknum á sama tíma, sem svo dregst frá heildarupphæðinni. Kerfið býður uppá að geta skipt upp kreditkortagreiðslu á nokkur tímabil, allt eftir upphæð æfingagjalda. Ef greiða þarf með öðrum hætti þarf viðkomandi að koma á skrifstofu ÍR á skrifstofutíma kl.10:00-16:00. Þeir sem þurfa aðstoð við skráningu eða vilja greiða með öðrum hætti, bendum við á skrifstofu á 2.hæð ÍR heimilis að Skógarseli.



Þjálfarar flokkana verða eftirfarandi og allar upplýsingar um hvern flokk eru settar inn á bloggsíður flokkana. Upplýsingar um þjálfara og æfingar er hægt að sjá á http://www.ir.is/Deildir/Knattspyrna/Yngriflokkar/



KARLA FLOKKAR.

3.flokkur karla – www.3flokkurir.blogcentral.is

Eiður Ottó Bjarnason og Engilbert Friðfinnson.

4. flokkur karla – www.4.flokkurir.blogcentral.is

Halldór Þ. Halldórsson og Óli Halldór Sigurjónsson.

5. flokkur karla – www.5flokkurir.blogcentral.is

Halldór Þ. Halldórsson og Heimir Berg Halldórsson.

6. flokkur karla – www.6flokkurir.blogcentral.is

Óli Halldór Sigurjónsson, Halldór Hrannar Halldórsson.

7. flokkur karla – www.7flokkurir.blogcentral.is

Árni Guðmundsson, Jóhann Ingi Hjaltasson og Daníel Þór Steinsson.

8.flokkur karla og kvenna – www.8flokkurir.blogcentral.is

Halldór Þ. Halldórsson og Ivana Anna Nicolic.

Aðrir sem munu koma að æfingum 8., 7. og 6. flokks karla

Heimir Berg Halldórsson, Ísleifur Gissurarsson, Reynir Haraldsson og Jón Ágúst Engilbertsson.



KVENNAFLOKKAR

3. flokkur kvenna - www.irstelpur3.blogcentral.is

Bjarni Víðir Pálmason.

4. flokkur kvenna - www.irstelpur4.blogcentral.is

Brynjar Óli Guðmundsson.

5.flokkur kvenna - www.irstelpur5.blogcentral.is

Bryndís Jóhannesdóttir.

6.flokkur kvenna - www.irstelpur6.blogcentral.is

Tanja Nicolic og Ívana Anna Nicolic.

7. flokkur kvenna - www.irstelpur7.blogcentral.is

Bjarni Víðir Pálmasson.

 

» 13 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Heimsóknir
Í dag:  44  Alls: 20067
Könnun

Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.
Þínir flokkar
KRR mót.
KSÍ mót
Önnur mót
Fótboltasíður
Fræðsla